Jæja hvað er að frétta hjá ykkur mínir kæru vinir????
Héðan af nesinu langa er allt gott og fínt að frétta, fínt veður
eins og alltaf.
Er núna að hjálpa betri helmingnum í skýrslugerð fyrir
fyrirtækið sem hann hyggst stofna. En auðvita gat ég ekki haldist í
ákveðnu verki, varð að fara úr einu í annað eins og svo oft
áður.
Það er nú helst að frétta hjá okkur litlu fjölskyldunni sem fer
óðum stækkandi, að liltla sæta stelpan sem við eignuðumst er algjör
snilld. Ég sé sko ekki eftir því að hafa átt hana og ætla sko að
eiga trilljón fleiri. hahahahahahah
Hún er nú reyndar búin að vera pínu óróleg en Þórhalla frænka
segir að það geti verið vaxtakippur sem börn fá oft um 3 vikna
aldurinn. Þetta hefur nú reyndar farið batnandi svo við vonum bara
það besta.
Þórhalla fékk að halda á henni í gær alveg háskælandi í
klukkutíma en svo lagaðist allt og þá var gaman að skoða litlu
frænku sína.
Ég er búin að vera þrældugleg að ganga, er alltaf að reyna að
ganga af mér spikið en það gengur ekki vel. Labbaði samt ( eða
gékk) út á flugvöll og til baka og svo út á Sauðanes. Brjálað
dugleg. En samt fer ekkert spik af mér.
Nú koma aldeilis fréttir fyrir vini og vandamenn!!!!
Við erum að spá í að ferma og skíra dæturnar í ágúst hvorki
meira né minna. Það sparar okkur sko ein veisluhöld ef við sláum
þessu bara saman. Hvernig líst ykkur á það ? Ekki að þið fáið
einhverju ráðið bara gaman að opna umræðu um það og þið megið líka
alveg bjóðast til að hjálpa því ég kann ekkert svona, kann bara að
halda drykkjuveislur þar sem er bara boðið upp á vín eða þá bara
ekki neitt.
Þá höfum við líka nógan tíma til að ákveða nafn víst Hvíta Sunna
er ekki leyft.
Gleymdi alveg að minnast á fjölgunina í fjölskyldunni, það eru
sko líka gæsaungar á heimilinu. Andrea er nú ekki orðin neitt smá
mikil sveitakona, með hund og gæsir og fullt af börnum og
karlrembukarl. Nei grín ég hugsa nú ekkert um þessa sætu unga það
er algjörlega á ábyrgð unglingsins á heimilinu.
Nenni ekki meir núna en vil bara skila knúsi og kossum til ykkar
allra og endilega farið að drífa ykkur í heimsókn að skoða litlu
stelpuna mína, hún er svo sæt og fín eins og hin stelpan mín
auðvita. Ég er greinilega snillingur í því að búa til og eiga
börn.
hahahahahaha